Flugsendingar

Inn- & útflutningur

Ert þú á ferð og flugi? Við erum það líka! Viðurkenndir og reynslumiklir samstarfsaðilar sækja og taka á móti sendingum hvar sem er í veröldinni og koma þeim til Íslands eftir fyrirfram ákveðnum leiðum.

Bílaiðnaður

Jónar Transport sérhæfa sig í flutningum á varahlutum ökutækja og vinnuvéla. Við bjóðum heildarlausnir fyrir bæði hefðbundna og flókna flutninga — alltaf með hagkvæmustu og öruggustu flutningsleiðina.

Neytendavörur

Frá tískuvarningi til leikfanga – Sérhæfðar lausnir fyrir síbreytilegan neytendamarkað

Hitastýrðir flutningar

Hitastýrðir flutningar tryggja örugga meðhöndlun á viðkvæmum vörum eins og t.d lyfjum, matvælum og snyrtivörum.

Hátækni­­­­iðnaður

Heildarlausnir okkar á flutningi hátæknivöru með sérsniðnum lausnum sem koma til móts við sterkar kröfur markaðarins. - Við tryggjum að hátæknivörur skili sér örugglega á áfangastað

Tónlistar- og kvikmynda­iðnaðurinn

Frá Justin Bieber til Guns N' Roses, Fast and the Furious til Game of Thrones — við höfum áratuga reynslu af flóknum verkefnum fyrir tónlistar- og kvikmyndaiðnaðinn.

Við sjáum um flutningana — svo þú getur einbeitt þér að listinni, framleiðslunni og sýningunni.

Viðburðir

Áratuga reynsla af flutningum fyrir flókin verkefni og viðburði — listasýningar, ráðstefnur, hátæknisýningar og sérhæfð fagviðburði.

Lyf og líftækni

Alltaf í réttu ástandi – á réttum tíma - Við tryggjum að lyf og líftæknivörur skili sér í réttu magni, í réttum gæðum og á réttum tíma — hverju sinni.

Við sérhæfum okkur í flutningum fyrir lyfja- og líftækniiðnaðinn með áherslu á öryggi, rekjanleika og vandaða meðhöndlun á viðkvæmum sendingum.

Tískuiðnaður

This copy should complement the main headline, make the value concrete, and handle your customer's objection. Keep it clear and simple.

Annað

Þegar að kemur að fjölbreyttni í atvinnnulífinu hafa Jónar Transport marga fjöruna sopið. Frá jarðvegsborum fyrir orkuiðnaðinn til þyrluflugvéla – frá litlum og öflugum örgjörvum til leikfanga fyrir börn. Við flytjum fjölbreyttan farm með öryggi, fagmennsku og áreiðanleika. Þetta er Jónar

Biddu Jón um tilboð – við finnum besta flutninginn

Segðu okkur hvar varan fer af stað, hvert hún á að fara og hvað hún vegur. Jón sér um restina: velur hagkvæmustu leiðina, reiknar kostnaðinn og sendir þér skriflegt tilboð samdægurs.

Afhverju að velja Jón?

  • Alhliða þjónusta – Við tökum að okkur allan flutningsferilinn, hvort sem er inn- eða útflutningur.
  • Almenn flugfrakt – Við vinnum með öllum flugfélögum sem fljúga til og frá Íslandi til að finna hagkvæmustu lausn hverju sinni.
  • Viðskiptaþjónusta – Við gerum verðtilboð, sækjum vöruna hjá sendanda og fylgjum henni til loka. Þú færð færð að fylgjast með ferlinu frá A-Ö.
  • Sérhæfð ráðgjöf - Starfsfólk með IATA, DGR og GDP vottanir fyrir lyfja- og sérflutningum.
  • Hraðinn skiptir máli - Allar sendingar hjá Jónum skipta máli.
  • Safnsendingar - Safnsendingar í flugi með samstarfi við samstarfsaðila í London og París til að lækka flutningskostnað.
  • Vottað gæðakerfi - Gæðakerfið okkar staðfestir gæðin í þjónustunni

Fróðleikur um sendingar

Með hvaða flugfélögum vinnið þið?

Við erum í samstarfi við öll flugfélög sem fljúga til og frá Íslandi. Þannig finnum við alltaf hagkvæmustu og fljótlegustu leiðina fyrir þinn farm.

Get ég fylgst með stöðu farmsins míns í rauntíma?

Já. Við látum þig vita hvar varan er stödd á hverju stigi, og í þjónustuvefnum okkar geturðu fylgst með öllum sendingum þínum á einu stað.

Hversu hratt get ég fengið tilboð?

Sendu okkur upplýsingar um uppruna, áfangastað og lýsingu farms – Jón reiknar út tilboðið og svarar oft innan tveggja klukkustunda á virkum dögum.

Takið þið að ykkur hættuleg efni eða viðkvæman farm?

Já. Starfsfólk okkar er DGR (Dangerous Goods Regulations) og GDP (Good Distribution Practice) vottað. Við flytjum bæði hættuleg efni og hitastýrðar lyfjasendingar daglega. Hitastýrð vöruhús, flutningabílar, gámar og umbúðir. Við erum einnig í samstarfi við vottað fyrirtæki í gagnaskráningu(data loggers), þar sem skráning á hitastigi fer fram í síriti.

Bjóðið þið upp á hurð-til-hurðar þjónustu og safnsendingar?

Já, við bjóðum upp á hurð-til-hurðar þjónustu hvort sem það er á Íslandi fyrir inn- og útflutning sem og erlendis með traustum samstarfsaðilum um allan heim. Samstarfsaðilar Jóna Transport í London og París bjóða viðskiptavinum upp á að pöntunum þeirra sé safnað saman í eina sendingu. Þannig er hægt að lækka sendingakostnað. Eyðublöð til útfyllingar eru hér